Fotbolti.net
14.02.15 - 13:51
Arnar Geir Halldórsson

Fyrrum leikmaður Chelsea til KA (Staðfest)

Archie í leik með unglingaliði Chelsea

Archie í leik með unglingaliði Chelsea

Canon

Mynd: Getty Images

KA hefur gengið frá félagaskiptum fyrir Archange Nkumu og mun hann leika með liðinu í Lengjubikarnum.
Hann hefur verið á reynslu hjá Akureyrarliðinu síðustu vikuna auk þriggja annarra útlendinga og er sá eini sem hefur fengið félagaskipti. Hann getur því leikið með KA gegn Fjölni í Lengjubikarnum á morgun.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort samið verði við kappann til lengri tíma en á heimasíðu KA er talað um tímabundinn samning.

Archie eins og hann er kallaður var á sínum tíma á mála hjá Chelsea en hann leikur í stöðu miðjumanns og er fæddur árið 1993.

Heimild: KA-Sport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.