Fotbolti.net
14.02.15 - 17:38
Magnús Már Einarsson

Juraj Grizelj í KA (Staðfest)

Juraj (til vinstri) í leik gegn KA.

Juraj (til vinstri) í leik gegn KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA hefur fengið króatíska kantmanninn Juraj Grizelj til liðs við sig frá Grindavík.

Fótbolti.net greindi frá því fyrr í dag að Juraj væri á leið í KA og hann hefur nú samið við félagið.
KA menn eru stórhuga fyrir átökin í 1. deildinni í sumar en Elfar Árni Aðalsteinsson kom til félagsins frá Breiðabliki fyrr í dag.

Halldór Hermann Jónsson og Hilmar Trausti Arnarsson hafa einnig gengið til liðs við félagið í vetur auk þess sem Archange Nkumu, fyrrum leikmaður Chelsea, er kominn með leikheimild fyrir Lengjubikarinn en hann hefur ger tímabundinn samning við KA.

Juraj hefur verið lykilhlutverki hjá Grindavík en hann var valinn í lið ársins í 1. deildinni sumarið 2013. Í fyrra skoraði Juraj átta mörk í 19 leikjum í fyrstu deildinni með Grindavík.

Heimild: Heimasíða KA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.