14.02.15 - 12:20
Arnar Geir Halldórsson
Sölvi Geir til Jiangsu Guoxin-Sainty (Staðfest)

Sölvi yfirgefur Rússland fyrir Kína

Mynd: Getty Images

Sölvi yfirgefur Rússland fyrir Kína

Mynd: Getty Images
Sölvi Geir Ottesen hefur náð samningum við kínverska úrvalsdeildarliðið Jiangsu Guoxin-Sainty en þetta kemur fram á Twitter síðu félagsins.
Greint var frá því í gær að Sölvi væri mættur til Kína til samningaviðræðna og tókust þær greinilega vel.
Sölvi mun hitta fyrir Viðar Örn Kjartansson hjá Jiangsu en hann gekk til liðsins á dögunum.
Sölvi kemur til Jiangsu eftir tveggja ára dvöl hjá Ural í Rússlandi en áður hafði hann leikið með FCK, SönderjyskE og Djurgarden á atvinnumannaferlinum.
Það styttist óðum í að deildarkeppnin í Kína hefjist en Jiangsu á fyrsta leik þann 7.mars næstkomandi gegn lærisveinum Sven-Göran Eriksson í Shanghai SIPG.

Solvi Ottesen is officially announced. pic.twitter.com/BH8GDsgSA9
— Jiangsu Sainty News (@saintyfc) February 14, 2015