Fotbolti.net
14.02.15 - 14:28
Arnar Geir Halldórsson

Tim Sherwood tekinn við Aston Villa (Staðfest)

Tim Sherwood er mættur aftur í enska boltann

Tim Sherwood er mættur aftur í enska boltann

Canon

Mynd: Getty Images

Tim Sherwood er tekinn við stjórastarfinu á Villa Park en frá þessu er greint á heimasíðu Aston Villa.
Sherwood sem er 46 ára stýrði Tottenham á síðustu leiktíð en hann hafði áður verið í þjálfaraliði félagsins til margra ára.

Samningur Sherwood við Aston Villa er til 2018 og binda forráðamenn Aston Villa miklar vonir við ráðninguna en liðið er í bullandi botnbaráttu.

Aston Villa leikur gegn Leicester í 16-liða úrslitum enska bikarsins í hádeginu á morgun.

NEW MANAGER: A very warm claret and blue welcome to Tim Sherwood. Story: http://t.co/3XTUTJi04d #AVFC #WelcomeTim pic.twitter.com/HcVwgmAKzj

— Aston Villa FC (@AVFCOfficial) February 14, 2015

Heimild: Heimasíða Aston Villa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.