14.02.20 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Klopp vanmetur ekki Norwich - Mikilvægasti leikur lífsins

Klár í hörkuleik.

Mynd: Getty Images

Klár í hörkuleik.

Mynd: Getty Images
„Við eigum ekki aðra kosti en að gera þennan leik að þeim mikilvægasti í lífinu. Spilum þannig á laugardag og reynum allt til að vinna hann," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag fyrir leikinn gegn Norwich á morgun.
Norwich situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar en Klopp segir ekkert vanmat í boði gegn þeim.
Norwich situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar en Klopp segir ekkert vanmat í boði gegn þeim.
„Fólk heldur að þetta verði auðvelt því það hugsar þetta ekki út í gegn og horfir bara á töfluna. Við vitum að við getum lent í vandræðum og við vitum líka að við getum látið þá lenda í vandræðum."
„Ég er mjög hrifinn af því að þeir hafa haldið sig við sín gildi. Leikurinn gegn þeim í ágúst er gott dæmi um tímabilið þeirra. Þeir spiluðu mjög góðan fótbolta og eru með frábæran þjálfara. Þeir fengu fjögur mörk á sig þar en gáfust aldrei upp. Þeir hafa látið 95% liða lenda í vandræðum."

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |