Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. mars 2020 19:45
Ívan Guðjón Baldursson
Courtois og Hakimi spila LoL í beinni útsendingu
Mynd: Getty Images
Knattspyrnumenn eru í fríi víða um Evrópu vegna kórónaveirunnar skæðu sem ríður nú yfir vestræna heiminn af fullum þunga.

Fólk er hvatt til að halda sig innandyra og hafa nokkrir knattspyrnumenn tekið sig saman til að halda aðdáendum sínum heima.

Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid, mun spila leik í tölvuleiknum LoL (League of Legends) ásamt öðrum atvinnumönnum.

Tveir liðsfélagar Courtois úr Real Madrid munu spila með honum, Sergio Reguillon sem er hjá Sevilla að láni og Achraf Hakimi sem er hjá Dortmund. Þá er Borja Iglesias, sóknarmaður Real Betis, einnig í hópnum.

Hægt verður að fylgjast með félögunum í beinni útsendingu klukkan 21:00 í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner