Það eru tveir leikir sem fara af stað í ensku úrvalsdeildinni núna klukkan 15:00 og er búið að opinbera byrjunarliðin fyrir þá leiki.
Burnley tekur á móti Bournemouth og á sama tíma spilar Sunderland við Brighton.
Burnley tekur á móti Bournemouth og á sama tíma spilar Sunderland við Brighton.
Sunderland er enn án markvarðarins Robin Roefs sem er á meiðslalistanum og er Svíinn Melker Ellborg í markinu. Það eru frábær tíðindi fyrir Sunderland að fá Granit Xhaka aftur.
Hjá Brighton er Kaoru Mitoma ekki með þar sem hann sást yfirgefa leikinn gegn Arsenal á hækjum.
James Ward-Prowse er á meðal þeirra sem koma inn í lið Burnley og verður Bournemouth því að passa sig sérstaklega í föstum leikatriðum. Bournemouth mætir með sterkt lið til leiks þar sem Brassarnir Rayan og Evanilson eru fremstir í flokki.
Byrjunarlið Burnley: Dubravka, Walker, Hartman, Esteve, Foster, Ward-Prowse, Anthony, Humphreys, Flemming, Hannibal, Laurent.
Byrjunarlið Bournemouth: Petrovic, Truffert, Senesi, Hill, Scott, Christie, Smith, Tavernier, Kroupi, Rayan, Evanilson.
Byrjunarlið Sunderland: Ellborg, Hume, Ballard, Alderete, Geertruida, Xhaka, Sadiki, Rigg, Diarra, Talbi, Brobbey.
Byrjunarlið Brighton: Verbruggen, Wieffer Dunk, Van Hecke, Kadioglu, Gross, Hinshelwood, Milner, Minteh, Welbeck, Gomez.
Athugasemdir




