Iceland Soccer Travel og FH munu dagana 19-21. júní bjóða upp á knattspyrnuskóla fyrir krakka á aldrinum 13-16 ára þar sem hægt verður að æfa við bestu aðstæður undir handleiðslu frábærra þjálfara. Ásamt æfingunum verður á dagskránni miðnæturæfing, fyrirlestrar og heimsókn í FlyOver Iceland ásamt því að farið verður á leik í Pepsi Max deildinni. Gisting og fullt fæði er innifalið í verðinu.
Þetta er einstakt tækifæri til að njóta þess að æfa knattspyrnu við frábærar aðstæður.
Þjálfarar meistaraflokka og yngri flokka hjá FH munu sjá um æfingarnar. Hjá FH er lögð er mikil áhersla á að vera með vel menntaða þjálfara í öllum flokkum félagsins. Þjálfararnir eru ýmist með UEFA Pro, UEFA A og UEFA Youth Elite gráður.
Á námskeiðinu verður lagt mikið uppúr því að hver og einn leikmaður fái þjálfun við hæfi og áhersluatriði verða þá helst knatttækni, sendingar og spil með ýmsum útfærslum. Þjálfarar FH hafa víðtæka reynslu og mun það skína í gegn á þessu einstaka námskeiði.
Smelltu hér til að sjá dagskrá
Verð: 39.900
Innifalið:
Gisting
Fullt Fæði
Æfingar
Umsjón, þjálfun, kennsla
Fyrirlestur Begga Ólafs
FlyOver Iceland
Fótboltagolf
Miði á Pepsi Max leik
SKRÁNING:
Sportabler skráning:
Venjuleg skráning
* Einnig verður í boði að koma með heila flokka á öðrum tímasetningum.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Iceland Soccer Travel
Frekari upplýsingar: [email protected]
Athugasemdir