Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 14. maí 2021 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Móðir Cristiano: Hann mun spila með Sporting á næsta ári
Cristiano Ronaldo til Sporting?
Cristiano Ronaldo til Sporting?
Mynd: Getty Images
Dolores Aveiro, móðir Cristiano Ronaldo, segist ætla að sannfæra son sinn um að spila með Sporting Lisbon á næsta ári.

Sporting Lisbon varð portúgalskur meistari á dögunum þegar aðeins tvær umferðir eru eftir en liðið hefur ekki tapað leik á tímabilinu.

Það hefur mikið gengið á hjá portúgalska félaginu síðustu ár en aðeins þrjú ár eru liðin frá því stuðningsmenn réðust á leikmenn á æfingasvæði liðsins.

Sporting missti marga af mikilvægustu leikmönnum liðsins en þrátt fyrir það er liðið að vinna deildina þremur árum síðar.

Stuðningsmennirnir vilja fá Ronaldo aftur heim í Sporting þar sem hann hóf atvinnumannaferilinn og ætlar móðir hans að sannfæra hann um að koma aftur en hann á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Juventus.

„Ég mun ræða við hann og sannfæra hann um að koma aftur til Sporting. Hann mun spila á Alvalade (heimavöllur Sporting) á næsta ári," sagði Aveiro, sem stóð á svölunum heima hjá sér að fagna sigri Sporting í deildinni, en stuðningsmennirnir náðu þessari yfirlýsingu á myndband.
Athugasemdir
banner
banner