Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fim 14. maí 2026 22:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Baulað á Mbappe - „Arbeloa segir að ég sé fjórði kostur"
Mynd: EPA
Kylian Mbappe kom inn á sem varamaður og lagði upp annað mark Real Madrid á Jude Bellingham í 2-0 sigri liðsins á Real Oviedo í spænsku deildinni í kvöld.

Mbappe missti af El Clascio vegna meiðsla en hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að fara í frí með kærustu sinni til Ítalíu á dögunum.

„Það er miður að ég hafi ekki spilað í El Clasico. Svona er lífið. Við getum ekki breytt skoðunum annarra, ég tek þessu ekki persónulega. Það hefur verið baulað á mig áður, þetta er hluti af leiknum og lífinu. Stundum eru þeir ekki ánægður en eru alltaf til staðar," sagði Mbappe.

„Ég fékk leyfi hjá félaginu að fara til Ítalíu. Ég var ekki sá eini, ég verð að taka þessu og halda áfram. Ég get breytt þessari stöðu auðveldlega."

Mbappe sagðist vera tilbúinn að byrja leikinn í kvöld.

„Ég er hundrað prósent klár. Ég heef ekki spilað því stjórinn segir að ég sé fjórði kostur á eftir Mastantuono, Vini og Gonzalo Garcia. Ég var tilbúinn að byrja, þetta er hans ákvörðun og það þarf að virða hana. Ég er ekki reiður."

Þá tjáði hann sig um samband sitt við Xabi Alonso, fyrrum stjóra liðsins, og Alvaro Arbeloa, núverandi bráðabirgðastjóra liðsins.

„Ég á í góðu sambandi við Xabi, hann verður frábær þjálfari. Það er í fortíðinni og við verðum að horfa fram á við," sagði Mbappe.

„Það er ekkert vandamál með Arbeloa. Maður verður að virða hann. Maður verður að virða hans hugmyndir og ég verð að gera betur til að spila fram yfir Vini, Gonzalo og Mastantuono. Ég horfi ekki á fréttamannafundi hjá stjóranum. Ég horfi á franskt sjónvarp heima, ekki spænskt."
Slapp
banner
banner
banner
banner