Fotbolti.net
14.05.26 - 23:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

Segir að Mbappe hafi misskilið sig - „Ég ræð því hver spilar"

Segir að Mbappe hafi misskilið sig - „Ég ræð því hver spilar"
Canon

Mynd: EPA

Kylian Mbappe var í athyglisverðu viðtali eftir 2-0 sigur Real Madrid á Real Oviedo í spænsku deildinni í kvöld.

Mbappe kom inn á sem varamaður og lagði upp seinna mark liðsins á Jude Bellingham. Mbappe hefur verið að berjast við meiðsli en hann vildi byrja í kvöld og sagði að Alvaro Arbeloa taldi hann vera fjórða kost í sóknarlínuna.
Baulað á Mbappe - „Arbeloa segir að ég sé fjórði kostur"
TENGT EFNI

Baulað á Mbappe - „Arbeloa segir að ég sé fjórði kostur"

„Ég sagði það ekki. Hann hlýtur að hafa misskilið mig. Ég ræð því hver spilar meðan ég sit í þessum stól, mér er sama ef þú ert ósammála, hvað sem þú heitir. Ef þér líkar það ekki getur þú beðið eftir næsta tækifæri," sagði Arbeloa eftir leikinn.

„Ég vildi óska þess að ég væri með fjóra framherja. Ég veit ekki hvað ég á að segja því ég er ekki með fjóra framherja og ég sagði ekkert þessu líkt við hann. Hann skildi þetta sennilega ekki, ég sagði ekki við hann að hann væri fjórði framherjinn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.