14.06.16 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ronald Koeman nýr stjóri Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Búið er að staðfesta Ronald Koeman sem nýjan knattspyrnustjóra Everton.
Roberto Martinez var rekinn í maí og hefur Koeman ákveðið að yfirgefa Southampton eftir tvö góð ár þar.

Koeman fær væna launahækkun hjá Everton en talið er að stór hluti ákvörðunarinnar tengist því að Everton er reiðubúið að gefa Koeman væna fúlgu fjárs til leikmannakaupa í sumar.
Koeman er 53 ára gamall Hollendingur sem lék á sínum tíma 78 landsleiki fyrir Holland auk þess að vera lykilmaður í liðum á borð við Ajax, PSV Eindhoven, Barcelona og Feyenoord.
Þjálfaraferill Koeman hefur einnig verið góður, en hann stýrði Ajax í fjögur ár áður en hann tók við Benfica, svo PSV, Valencia, AZ Alkmaar og Feyenoord áður en hann tók við Southampton fyrir tveimur árum.