Fotbolti.net
14.06.16 - 13:06
Ívan Guðjón Baldursson

Sonur eigandans: Feghouli kominn til West Ham (Staðfest)

Sonur eigandans: Feghouli kominn til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alsírski kantmaðurinn Sofiane Feghouli er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við West Ham United, samkvæmt Jack Sullivan. Jack er sonur David Sullivan sem er meirihlutaeigandi í West Ham.

Feghouli er samningslaus eftir sex ár hjá Valencia en hann er sagður hafa hafnað tilboðum frá Sevilla og Manchester United til að ganga til ilðs við Hamrana.
Sagt er að Feghouli hafi litist afar vel á framtíðaráform félagsins og að Slaven Bilic hafi svo sannfært hann endanlega um að ganga til liðs við félagið.

Feghouli er 26 ára gamall, er lykilmaður í alsírska landsliðinu og hefur verið einn af bestu mönnum Valencia á tíma sínum þar.

Uppfærsla:
West Ham er búið að staðfesta félagsskiptin. Feghouli kemur 1. júlí.

Feghouli has signed for West Ham for the next 3 years!!! 🔥🔥🔥

— Jack Sullivan (@jsullivanwhu) June 14, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.