Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 14. júní 2021 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Coutinho til Leicester? - Romero til Liverpool frekar en Man Utd
Powerade
Mata þarf að taka á sig væna launalækkun
Mata þarf að taka á sig væna launalækkun
Mynd: EPA
Romero til Liverpool?
Romero til Liverpool?
Mynd: Getty Images
Coutinho til Leicester?
Coutinho til Leicester?
Mynd: Getty Images
Slúðrið á mánudegi er tekið saman af BBC og er í boði Powerade.



Leicester undirbýr tilboð í Philippe Coutinho (29) miðjumann Barcelona. Hann er talinn kosta 17 milljónir punda. (Mundo Deportivo)

Paulo Fonseca er að skrifa undir þriggja ára samning við Tottenham. (Guardian)

Real Madrid ætlar að bjóða Sergio Ramos (35) nýjan samning þar sem félagið óttast að Raphael Varane (28) sé á förum. (AS)

Leeds vill fá vinstri bakvörðinn Maxwel Cornet (24) frá Lyon en 20 milljónir punda gæti verið of hár verðmiði. (Sun)

Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, vill fá Timo Werner (25) frá Chelsea. (Fichajes)

Juan Mata (33) þarf að lækka launin sín um 70 þúsund pund á viku ef hann vill vera áfram á Old Trafford. (Star)

Mikel Arteta er opinn fyrir því að selja Bernd Leno (29) ef hann getur fundið nýjan aðalmarkvörð. (Mirror)

Chelsea hefur boðið 43 milljónir punda og Emerson í Achraf Hakimi (22) hjá Inter. (Corriere dello Sport)

Liverpool leiðir í kapphlaupinu um Cristian Romero varnarmann Juventus. Manchester United hefur einnig áhuga á Romero sem lék með Atalanta í vetur. (Calciomercato)

Southampton, West Ham, Brighton og Watford hafa áhuga á Albert Elis (25) ára framherja Boavista. (A Bola)

Dortmund mun virkja ákvæði í samningi Jude Bellingham þegar hann verður átján ára seinna í mánuðinum. Það mun framlengja samning hans fram á sumarið 2025. (Bild)

Arsenal vill fá Nabil Fekir (27) frá Real Betis. (AS)

Crystal Palace ætlar að bjóða fimmtán milljónir punda í Conor Gallagher (21) sem er samningsbundinn Chelsea. (Sun)

West Ham, Southamtpn og AC Milan vilja fá Junior Firpo (24) frá Barcelon. (Mundo Deportivo)

Jesse Lingard (28) hefur sagði við Ole Gunnar Solskjær að hann vilji vera áfram hjá Man Utd. (Sun)

Napoli vill fá Moussa Sissoko (31) frá Tottenham. (Sky Italia)

Norwich vill fá Philip Billing (25) frá Bournmeputh. (Mirror)

Bernando Silva (26) er sagður vilja fara frá Manchester City. Atletico og Barcelona hafa áhuga. (Duncan Castles á Twitter)

Leeds hefur verið orðað við Borna Barisic (28) bakvörð Rangers. (Football Insider)

Rado Dragusin (19) varnarmaður Juvntus er skotmark Crystal Palace. (Calciomercato)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner