Blaðamaðurinn Duncan Castles sem heldur úti vinsælu félagsskipta hlaðvarpi greindi frá því á Twitter um helgina að Bernardo Silva vildi fara frá Manchester City.
Castles segir að honum standi til boða að fara til Spánar, annað hvort til Atletico Madrid eða Barcelona.
Castles segir að honum standi til boða að fara til Spánar, annað hvort til Atletico Madrid eða Barcelona.
Bernardo er 26 ára miðjumaður sem gekk í raðir City frá Mónakó árið 2017. Hann er uppalinn hjá Benfica og er þessa stundina með portúgalska landsliðinu á EM.
Castles greinir þá frá því að Barcelona hafi áhuga á því að fá Joao Cancelo frá City og sé tilbúið að bjóða Ousmane Dembele og Sergi Roberto á móti.
Bernardo Silva wants to leave Manchester City and has two offers in La Liga. One from Atletico; second from Barcelona.
— Duncan Castles (@DuncanCastles) June 12, 2021
Understand that Barca are also pursuing Joao Cancelo, and proposing ‘FFP swap’ deals. Options include Sergi Roberto + Ousmane Dembele. https://t.co/LD9T9HEdOD https://t.co/ewwDnZKvGV pic.twitter.com/EJlsm1fyai
Athugasemdir