Fotbolti.net
14.07.21 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Felipe Anderson aftur til Lazio (Staðfest)

Felipe Anderson er 28 ára gamall.

Felipe Anderson er 28 ára gamall.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski kantmaðurinn Felipe Anderson er genginn aftur í raðir Lazio eftir misheppnaða dvöl í enska boltanum.
Anderson var algjör lykilmaður í liði Lazio í Serie A deildinni og borgaði West Ham metfé fyrir hann sumarið 2018, rúmlega 30 milljónir punda.

Anderson átti gott fyrsta tímabil hjá Hömrunum og skoraði 10 mörk í 40 leikjum en missti byrjunarliðssætið á sínu öðru tímabili. Hann var lánaður til Porto í vetur en sú dvöl mislukkaðist.

Nú hefur Lazio keypt hann til baka og er kaupverðið óuppgefið. Hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi við West Ham og ólíklegt að ítalska félagið greiði mikið fyrir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.