Fotbolti.net
14.07.26 - 23:34
Ívan Guðjón Baldursson

Deschamps: Rangar ákvarðanir og tæknileg mistök

Deschamps: Rangar ákvarðanir og tæknileg mistök
Canon

Mynd: EPA

Didier Deschamps, fráfarandi landsliðsþjálfari Frakklands, var niðurlútur eftir tap gegn Spáni í undanúrslitum heimsmeistaramótsins fyrr í kvöld.
HM: Spánn í úrslit eftir þægilegan sigur
TENGT EFNI

HM: Spánn í úrslit eftir þægilegan sigur

Frakkland var talin sigurstranglegasta þjóð mótsins og sýndi frábæra takta allt þar til kom að erfiðum undanúrslitaleik gegn ríkjandi Evrópumeisturum.

„Strákarnir eru miður sín útaf því að við vorum með háleit markmið. Við verðum að viðurkenna að við vorum ekki nægilega góðir tæknilega séð í leik gegn virkilega öflugum andstæðingum," sagði Deschamps eftir lokaflautið.

„Það er okkur að kenna að við töpuðum þessum leik, við vorum bitlausir. Við tókum rangar ákvarðanir á mikilvægum stundum og gerðum tæknileg mistök.

„Þetta er sárt, en svona er þetta á hæsta gæðastigi fótboltans."


Frökkum mistókst þar með að komast í úrslitaleik HM í þriðja sinn í röð. Lærlingar Deschamps töpuðu úrslitaleiknum gegn Argentínu í Katar eftir að hafa unnið HM 2018 í Rússlandi.

Luis de la Fuente: Erum besta landslið í heimi
TENGT EFNI

Luis de la Fuente: Erum besta landslið í heimi

Deschamps: Rangar ákvarðanir og tæknileg mistök
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.