Fotbolti.net
14.07.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Iraola neitaði að tjá sig um Barcola: Vantar kantmann

Iraola neitaði að tjá sig um Barcola: Vantar kantmann
Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, nýráðinn þjálfari Liverpool, neitaði að tjá sig um orðróma sem segja félagið vera í viðræðum við Paris Saint-Germain um félagaskipti fyrir kantmanninn Bradley Barcola.
Barcola um framtíðina: Veit ekki hvað gerist eftir HM
TENGT EFNI

Barcola um framtíðina: Veit ekki hvað gerist eftir HM

Liverpool keypti spænska landsliðsmanninn Víctor Munoz fyrr í sumar og er ljóst að liðið þarf fleiri kantmenn fyrir komandi leiktíð. Yan Diomande er ofarlega á óskalistanum en hann er talinn vilja frekar skipta til PSG.

„Ég get ekki tjáð mig um leikmenn annarra liða," sagði Iraola. „Það er augljóst að okkur vantar leikmann í þessa stöðu. Ekki endilega til að fylla í skarðið fyrir Mo Salah, en það er klárt að okkur vantar einn kantmann í viðbót.

„Við erum með góða leikmenn frá vegna meiðsla og við munum þurfa að taka erfiðar ákvarðanir í sumar. Það er munur á því að þjálfa hjá Liverpool og öðrum liðum útaf því að hjá öðrum liðum þá þekkir maður vanalega ekki leikmennina sem ráðningadeildin stingur upp á, en hjá Liverpool þá þekkir maður þá fyrir."
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Iraola neitaði að tjá sig um Barcola: Vantar kantmann
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.