Eftirsóttur miðvörður hafnar nýjum samningi

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgalski miðvörðurinn Antonio Silva hefur hafnað nýjum samningi frá Benfica og ætlar sér í stærra lið í Evrópu.
Silva, sem er 22 ára, er uppalinn hjá Benfica og hefur fest sig í sessi sem lykilmaður í aðalliðinu.
Það kom nokkuð á óvart að miðvörðurinn skyldi ekki vera valinn í portúgalska landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið, enda er hann talinn einn efnilegasti varnarmaður þjóðarinnar.
Silva á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Benfica og hefur nú hafnað tilboði félagsins um framlengingu. Hann vill leita annað og Benfica íhugar því alvarlega að selja hann í sumar fremur en að eiga á hættu að missa hann frítt að ári.
Samkvæmt erlendum miðlum hafa Bournemouth, AC Milan og Juventus öll sýnt Silva áhuga. Benfica er sagt verðmeta hann á um 20 milljónir evra.