Kane ósáttur með enskan íþróttafréttamann

Harry Kane, fyrirliði Englands.

Mynd: EPA

Gabriel Clarke að taka viðtal.

Mynd: EPA

Harry Kane, fyrirliði Englands.

Mynd: EPA
Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins, sakar íþróttafréttamanninn Gabriel Clarke um að reyna að skapa óróleika með spurningum sínum eftir sigur Englands gegn Noregi.
Clarke hefur lengi unnið fyrir ITV og tók viðtal við Jude Bellingham eftir leikinn þar sem hann bað hann um að svara fyrir ummæli landsliðsþjálfarans Thomas Tuchel.
Tuchel hafði sagt að frammistaða enska liðsins hefði verið slök og það heppið að sleppa með sigur. Bellingham brást ekki vel við þeim ummælum og setti spurningamerki við hvort Tuchel vissi hvernig væri að spila við þessar aðstæður.
Þessi ummæli sköpuðu vangaveltur um hvort einhver pirringur væri milli Tuchel og Bellingham. Kane segir að allt sé í góðu milli þeirra og sakar ensku pressuna um að reyna að skapa óróleika.

TENGT EFNI
Kane kom Tuchel til varnar
Oft er talað um að enska pressan hafi verið versti óvinur enska landsliðsins en hún hefur verið dugleg við að eltast við neikvæðar fréttir sem kalla fram lestur.
„Þetta virðist loða við England, eitthvað sem er alltaf gert á stórmótum. Þú ert búinn að spila í svona leik og fimm mínútum eftir lokaflaut ertu spurður út í ummæli þjálfarans og veist ekki hvað hann sagði nákvæmlega. Hver er tilgangurinn? Hverju viltu að Jude svari?" segir Bellingham.
„Þessi hópur er kominn svona langt vegna samheldni, ekki bara vegna leikmannana eða starfsliðsins. Stundum er gert miklu meira úr hlutunum en raunveruleikinn er."