Lið og leikmaður 13. umferðar - Markahæstur eftir þrennu á Húsavík

Óðinn Bjarkason skoraði þrennu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tristan var maður leiksins í Breiðholti.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Karl Ágúst Karlsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óðinn Bjarkason skoraði þrennu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var mikið skorað í 13. umferð Lengjudeildarinnar og því er lið umferðarinnar skiljanlega vel sóknarsinnað. Að þessu sinni sækjum við liðið til vina okkar á Livey þar sem Hjörtur Hjartarson og Jón Þór Hauksson gera hverja umferð upp í sérstökum markaþætti.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Óðinn Bjarkason - Afturelding
Mosfellingar eru á toppi deildarinnar og Óðinn Bjarkason er leikmaður umferðarinnar eftir að hafa skorað þrennu í 6-1 útisigri Aftureldingar gegn Völsungi. Þessi nítján ára sóknarleikmaður kom til Aftureldingar frá KR fyrir tímabilið og er markahæstur í Lengjudeildinni með tíu mörk.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Óðinn Bjarkason - Afturelding
Mosfellingar eru á toppi deildarinnar og Óðinn Bjarkason er leikmaður umferðarinnar eftir að hafa skorað þrennu í 6-1 útisigri Aftureldingar gegn Völsungi. Þessi nítján ára sóknarleikmaður kom til Aftureldingar frá KR fyrir tímabilið og er markahæstur í Lengjudeildinni með tíu mörk.

Afturelding á tvo aðra fulltrúa í úrvalsliðinu en það eru Birkir Már Sævarsson og Bjartur Bjarmi Barkarson sem skoraði eitt mark.
Fylkir, sem er í öðru sæti, gerði sér lítið fyrir og vann 5-2 útisigur gegn Vestra í gær. Heimir Guðjónsson setti leikinn vel upp og er þjálfari umferðarinnar. Guðmundur Tyrfingsson skoraði tvö mörk og er í liði umferðarinnar en Máni Austmann Hilmarsson skoraði einnig tvö og er óheppinn að missa af sæti í liðinu.
Þróttur, sem er í þriðja sæti, missteig sig í Breiðholtinu og gerði jafntefli 1-1 gegn tíu ÍR-ingum. Ágúst Unnar Kristinsson úr ÍR er valinn í lið umferðarinnar.
HK vann 4-3 útisigur gegn Ægi í mögnuðum leik. Karl Ágúst Karlsson var valinn maður leiksins en hann skoraði glæsilegt mark sem var valið mark umferðarinnar. Dominik Radic skoraði tvö mörk og er næstmarkahæstur í deildinni, með 9 mörk.
Njarðvík vann grannaslaginn gegn Grindavík 5-4 í ótrúlegum leik. Leandro Fernandes steig loks upp í liði Njarðvíkinga og skoraði tvö mörk og var maður leiksins. Hinn 18 ára gamli Gunnleifur Orri Gunnleifsson skoraði tvö mörk fyrir Grindavík.
Tristan Freyr Ingólfsson í Gróttu var valinn maður leiksins í naumum 1-0 sigri gegn Leikni í Breiðholtinu. Guðmundur Rafn Ingason er einnig í úrvalsliðinu.
Fyrri úrvalslið:
12. umferð - Andri Freyr Jónasson - Grótta
11. umferð - Birkir Már Sævarsson - Afturelding
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR
Heimild: Livey

Tristan var maður leiksins í Breiðholti.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Karl Ágúst Karlsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 13 | +21 | 28 |
| 2 | Fylkir | 13 | +9 | 27 |
| 3 | Þróttur R. | 13 | +12 | 24 |
| 4 | HK | 13 | +2 | 22 |
| 5 | Vestri | 14 | -1 | 21 |
| 6 | Njarðvík | 13 | +4 | 20 |
| 7 | Leiknir R. | 13 | +1 | 19 |
| 8 | Grótta | 12 | -3 | 19 |
| 9 | ÍR | 13 | -7 | 12 |
| 10 | Grindavík | 12 | -4 | 10 |
| 11 | Völsungur | 13 | -16 | 8 |
| 12 | Ægir | 14 | -18 | 8 |



