Mbappe gegn Yamal - Hvað segja tölurnar?

Kylian Mbappe fagnar.

Mynd: EPA

Lamine Yamal.

Mynd: EPA

Kylian Mbappe fagnar.

Mynd: EPA
Það er enginn vafi á því að Kylian Mbappe hefur skinið skærar fyrir framan mark andstæðingan en Lamine Yamal það sem af er heimsmeistaramóti. Þessar tvær af stærstu stjörnum fótboltaheimsins, leikmenn Real Madrid og Barcelona, mætast í kvöld þegar Frakkland og Spánn leika í undanúrslitum.
Frakkinn hefur skorað átta mörk úr 30 skotum (27%) en Lamine Yamal er aðeins með eitt mark úr 23 skotum (4%).

Mbappe er með þrjár stoðsendingar en Yamal hefur enn ekki lagt upp mark. Þegar kemur að knattraki er Yamal ofar en Mbappe og þá hefur hann einnig skilað meira varnarframlagi.
Yamal skoraði magnað jöfnunarmark þegar Spánn kom til baka og vann 2-1 sigur á Frökkum í undanúrslitum EM 2024. Í fyrra skoraði Yamal tvisvar og Mbappe einu sinni þegar Spánn vann 5-4 í rosalegum undanúrslitaleik Þjóðadeildarinnar.
Yamal hefur fagnað sigri í átta af tíu síðustu viðureignum gegn Mbappe þó sá franski hafi skorað níu mörk í þessum tíu leikjum í samanburði við sex frá Yamal.
Öflug sóknarvopn Frakka
Kylian Mbappe hirti fyrirsagnirnar enn og aftur þegar Frakkland vann Marokkó og komst í undanúrslit. Mbappe er með átta mörk á mótinu og er aðeins einu marki á eftir Lionel Messi á lista yfir markahæstu menn HM frá upphafi.
Sóknarvopn Frakklands eru gríðarlega öflug og breiddin mikil; Ousmane Dembele er kominn með fimm mörk og Michael Olise er með fimm stoðsendingar.
Á meðan hefur maður á tilfinningunni að Spánverjar eigi eftir að sýna sinn besta bolta. Yamal hefur ekki sprungið út og eina markið hans a mótinu kom gegn Sádi-Arabíu í riðlakeppninni.
Mikel Oyarzabal er með fjögur mörk en hefur ekki skorað í síðustu tveimur leikjum. Mikel Merino hefur reynst hetjan og komið Spáni í gegnum Portúgal og Belgíu í útsláttarkeppninni.

Heimild: BBC

Lamine Yamal.

Mynd: EPA

Mynd: BBC