Fotbolti.net
14.07.26 - 12:38
Elvar Geir Magnússon

„Að byrja Rice er áhætta sem Tuchel þarf ekki að taka“

Búist er við því að Rice byrji gegn Argentínu.

Búist er við því að Rice byrji gegn Argentínu.

Canon

Mynd: EPA

Enskir fjölmiðlar segja stefna í að miðjumaðurinn Declan Rice verði klár í að byrja fyrir enska landsliðið í undanúrslitaleiknum gegn Argentínu annað kvöld. Rice var tekinn af velli í hálfleik í sigrinum gegn Noregi í 8-liða úrslitum og svo kom í ljós að hann hafði verið rúmliggjandi og veikur í aðdraganda leiksins.

Guardian segir að Rice líði mun betur og verði væntanleg við hlið Elliot Anderson á miðsvæðinu gegn ríkjandi heimsmeisturum.

Andy Dunn, íþróttafréttamaður Mirror, skrifar skoðanapistil þar sem hann setur spurningamerki við það hvort það sé rétt að byrja með Rice. Hann talar um það gríðarlega leikjaálag sem hefur verið á þessum frábæra miðjumanni Arsenal og veltir því fyrir sér hvort hann hafi „lent á vegg“.

„Ef hann er ekki búinn að jafna sig að fullu ætti hann ekki að byrja leikinn. Rice var ekki líkur sjálfum sér gegn Noregi og enska liðið varð betra eftir að hann fór af velli. Það yrði frábært fyrir England ef Rice væri búinn að ná sér að fullu og tilbúinn að byrja en miðað við hversu slakur hann var gegn Noregi þá yrði það stór breyting á stuttum tíma. Hann er frábær fótboltamaður en að byrja honum er áhætta sem Tuchel þarf ekki að taka," segir Dunn.
Rice var rúmliggjandi í þrjá daga fyrir Noregsleikinn
TENGT EFNI

Rice var rúmliggjandi í þrjá daga fyrir Noregsleikinn

Varnarmaðurinn Ezri Konsa fór einnig af velli hjá Englandi gegn Noregi en hann fékk krampa. Þessi varnarmaður Aston Villa mun þó væntanlega vera í byrjunarliðinu í hægri bakverði.

Það er þó möguleiki á að Reece James byrji eftir að hafa komið inn sem varamaður gegn Noregi. Þá gæti Bukayo Saka komið inn í byrjunarliðið eftir góða frammistöðu af bekknum.
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands.

Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.