Fotbolti.net
14.07.26 - 13:52
Kári Snorrason

Arsenal kveður Trossard

Skoraði sex og lagði upp sex í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Skoraði sex og lagði upp sex í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: EPA

Belginn Leandro Trossard hefur yfirgefið Arsenal og er að ganga í raðir tyrkneska félagsins Besiktas.

Arsenal tilkynnir um brotthvarf Belgans á samfélagsmiðlum og segir í tilkynningu liðsins að félögin hafa náð saman um kaupverð. Stjörnublaðamaðurinn Fabrizio Romano segir kaupverðið nema um 20 milljónum evra.

Trossard, sem er 31 árs, kom við sögu í 31 leik með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og var hann í byrjunarliði í 21 leik. Hann kom alls að tólf mörkum með beinum hætti í deild.

Hann gekk til liðs við Arsenal frá Brighton í janúar 2023, þar áður hafði hann spilað í heimalandinu með Genk, Leuven, Lommel og Westerlo.

Trossard var í byrjunarliði Belgíu í öllum leikjum liðsins á HM en Belgar töpuðu gegn Spáni síðastliðinn föstudag í 8-liða úrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.