14.08.15 - 09:36
Magnús Már Einarsson
Adama Traore til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur keypt kantmanninn unga Adama Traore frá Barcelona.
Talið er að kaupverðið hljóði upp á um það bil sjö milljónir punda.
Hinn 19 ára gamli Traore skrifaði undir fimm ára samning hjá Aston Villa.

Traore á fjóra leiki að baki með aðalliði Barcelona en lengst af spilaði hann með B-liði félagsins í neðri deildunum. Traore hefur einnig spilað með yngri landsliðum Spánar.
„Þetta er mikiill styrkur fyrir félagið. Hann getur farið illa með andstæðinginn og ég er ánægður með að fá hann hingað,\" sagði Tim Sherwood stjóri Aston Villa.