14.08.15 - 11:45
Magnús Már Einarsson
Angel Guairido í Grindavík (Staðfest)


Mynd: Grindavík


Mynd: Grindavík
Grindavík hefur fengið sóknarmanninn Angel Guirado í sínar raðir en hann gerði samning við félagið út tímabilið.
Angel fékk leikheimild á dögunum en félagaskipti hans voru send út áður en félagaskiptagluginn lokaði um síðustu mánaðarmót.
Angel fékk leikheimild á dögunum en félagaskipti hans voru send út áður en félagaskiptagluginn lokaði um síðustu mánaðarmót.
Angel er frá Spáni en hann spilaði síðast í Tælandi. Hann hefur einnig Filippeyskt ríkisfang og hefur hann spilað með landsliði Filippseyja þar sem hann hefur meðal annars spilað með Ray Anthony Jónssyni fyrrum leikmanni Grindavíkur.
„Við bjóðum Angel velkomin í Grindavík, en hann hefur nú þegar fengið leikheimild,\" segir í tilkynningu frá Grindvíkingum.
Grindavík heimsækir Þrótt í 1. deild karla í kvöld klukkan 18:30.
„Við bjóðum Angel velkomin í Grindavík, en hann hefur nú þegar fengið leikheimild,\" segir í tilkynningu frá Grindvíkingum.
Grindavík heimsækir Þrótt í 1. deild karla í kvöld klukkan 18:30.
