14.08.15 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Chelsea lánar Nathan Ake til Watford (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford hefur fengið Nathan Ake á láni frá Chelsea út tímabilið. Ake skrifaði á sama tíma undir nýjan fimm ára samning við Chelsea.
Ake er tvítugur Hollendingur en hann kom til Chelsea frá Feyenoord þegar hann var 16 ára.
Ake getur spilað bæði á miðjunni og í vörninni en hann á fimm leiki að baki með aðalliði Chelsea.
Ake hefur einnig leikið með yngri landsliðum Hollands en hann fær nú meiri reynslu hjá Watford á þessu tímabili.

Nýliðar Watford fá WBA í heimsókn í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina.