14.08.15 - 15:03
Magnús Már Einarsson
Klara Bjartmarz ráðin framkvæmdastjóri KSÍ (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á fundi stjórnar KSÍ í gær var samþykkt að ráða Klöru Bjartmarz í starf framkvæmdastjóra KSÍ, en hún hafði áður verið ráðin tímabundið í mars á þessu ári.
Klara tók tímabundið við af Þóri Hákonarsyni í mars en nú hefur nú verið ráðin í starfið til frambúðar.
Klara hefur starfað fyrir KSÍ síðan í janúar 1994, lengst af við mótamál og landslið kvenna. Þá gegndi hún jafnframt starfi skrifstofustjóra KSÍ um árabil.
Að auki hefur Klara starfað fyrir UEFA sem eftirlitsmaður á alþjóðlegum leikjum.