Fotbolti.net
14.08.15 - 16:20
Magnús Már Einarsson

Roberto Soldado til Villarreal (Staðfest)

Roberto Soldado.

Roberto Soldado.

Canon

Mynd: Getty Images

Villarreal hefur keypt sóknarmanninn Roberto Soldado frá Tottenham.

Kaupverðið hefur ekki verið staðfest en tölur hafa heyrst frá sjö milljónum punda upp í ellefu milljónir punda.
Hinn þrítugi Soldado kom til Tottenham frá Valencia á 26 milljónir punda fyrir tveimur árum og miklar væntingar voru gerðar til hans.

Soldado stóðst ekki þær væntingar en hann skoraði aðallega úr vítaspyrnum hjá Tottenham.

Samtals skoraði Soldado sjö mörk í 51 deildarleik með Tottenham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.