Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 14. ágúst 2019 17:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Liverpool og Chelsea: Mane og Pulisic byrja
Mane og Salah. Þeir byrja.
Mane og Salah. Þeir byrja.
Mynd: Getty Images
Christian Pulisic.
Christian Pulisic.
Mynd: Getty Images
Klukkan 19:00 hefst leikurinn um Ofurbikar Evrópu, leikur Liverpool og Chelsea í Instabúl í Tyrklandi.

Í leiknum mætast liðin sem unnu Meistaradeildina og Evrópudeildina á síðasta tímabili. Það voru enskir úrslitaleikir í þessum keppnum á síðustu leiktíð. Liverpool vann Tottenham 2-0 í Meistaradeildinni og Chelsea vann 4-1 sigur á Arsenal í Evrópudeildinni.

Það verður áhugavert að sjá Chelsea í þessum leik eftir 4-0 niðurlæginguna gegn Manchester United á Old Trafford í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Liverpool vann Norwich 4-1 í opnunarleik deildarinnar.

Jurgen Klopp gerir fimm breytingar frá liði sínu sem vann Norwich. Alisson er meiddur og byrjar Adrian í hans stað. Joel Matip kemur inn fyrir Trent Alexander-Arnold, James Milner kemur inn fyrir Wijnaldum, Oxlade-Chamberlain inn fyrir Firmino og Mane inn fyrir Origi.

Naby Keita er meiddur og tekur engan þátt.

Frank Lampard byrjar með sömu vörn og gegn Manchester United, sem er athyglisvert. Þá byrjar N'Golo Kante, en hann var talinn tæpur vegna meiðsla. Olivier Giroud og Christian Pulisic koma inn og byrja Mason Mount og Tammy Abraham á bekknum.

Byrjunarlið Liverpool: Adrian, Gomez, Matip, Van Dijk, Robertson, Fabinho, Milner, Henderson, Oxlade-Chamberlain, Mane, Salah.
(Varamenn: Lonergan, Kelleher, Wijnaldum, Firmino, Lallana, Shaqiri, Brewster, Origi, Hoever, Alexander-Arnold, Elliott)

Byrjunarlið Chelsea: Kepa, Azpilicueta, Christensen, Zouma, Emerson, Kante, Jorginho, Kovacic, Pedro, Giroud, Pulisic.
(Varamenn: Caballero, Rudiger, Alonso, Zappacosta, Tomori, Mount, Kennedy, Gilmour, Barkley, Batshuayi, Abraham, Willian)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner