Brendan Rodgers telur sína menn í Leicester ekki verðskulda að fara frá Old Trafford án stiga.
Marcus Rashford gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 8. mínútu og stóð Manchester United uppi sem sigurvegari. Liðin eru jöfn með átta stig eftir fimm umferðir.
„Mér fannst við eiga skilið eitthvað úr þessum leik. Við fengum gott færi til að komast yfir og gáfum þeim svo vítaspyrnu sem réði úrslitum," sagði svekktur Rodgers að leikslokum.
„Við spiluðum vel í seinni hálfleik en klikkuðum alltaf á úrslitasendingunni. Við náðum ekki að þjónusta Jamie (Vardy) nógu vel og fengu bæði lið lítið af færum.
„Við förum heim pirraðir en það er jákvætt og segir mikið til um þær framfarir sem við höfum náð með ungan hóp."
Athugasemdir