Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 14. september 2020 23:00
Aksentije Milisic
Werner: Aldrei spilað gegn svona stórum og sterkum varnarmönnum
Werner og félagar fagna í kvöld.
Werner og félagar fagna í kvöld.
Mynd: Getty Images
Timo Werner, framherji Chelsea, lék sinn fyrsta leik með liðinu í kvöld þegar Chelsea lagði Brighton að velli í ensku úrvalsdeildinni.

Werner fiskaði vítaspyrnu og fékk fína dóma fyrir sýna frammistöðu. Hann var tekinn í viðtal eftir leikinn og lét hann skemmtileg ummæli falla þar sem hann lýsti ensku úrvalsdeildinni nokkuð vel.

„Enska úrvalsdeildin er öðruvísi. Ég hef aldrei spilað gegn þremur varnarmönnum sem eru svona stórir, sterkir og stæðilegir varnarmenn," sagði Werner brosandi.

„Leikurinn sjálfur var skemmtilegur fannst mér. Sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem ég fékk mikið pláss til að hlaupa í. Við klúðruðum síðustu sendingunni svolítið oft í dag en ef við lögum það þá eigum við eftir að skapa helling af færum í leikjum," sagði Werner.
Athugasemdir
banner
banner
banner