Fotbolti.net
14.09.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Segja umfjöllun Bold um Fannar öfgafulla - „Ég ber ábyrgð á þessari hegðun"

Segja umfjöllun Bold um Fannar öfgafulla - „Ég ber ábyrgð á þessari hegðun"
Canon

Mynd: Aðsend

Danska félagið AB harmar umfjöllun danska miðilsins Bold um brottvísun þjálfarans Fannars Berg Gunnólfssonar í leik liðsins Kolding í næstefstu deild Danmerkur í lok síðasta mánaðar.
Fannar fær aukaleik í bann fyrir framkomu sína
TENGT EFNI

Fannar fær aukaleik í bann fyrir framkomu sína

Eins og Fótbolti.net sagði frá á dögunum fékk Fannar rautt spjald fyrir að missa stjórn á skapi sínu og sparka í auglýsingaskilti.

Samkvæmt Bold átti Fannar að hafa farið inn á völlinn eftir leikinn og tekið í höndina á dómaranum og í kjölfarið hafi dómarateymið þurft að óska eftir því að öryggisvörður myndi fylgja Fannari í burtu. Þá hafi Fannar að hafa reynt að ná aftur á dómaranum í leikmannagöngunum en öryggisvörður kom í veg fyrir að eitthvað gæti gerst.

„Á meðan við samþykkjum lokaniðurstöðuna mótmælum við öfgafullri rangtúlkun Bold, sem hafði aldrei samband við félagið," segir í yfirlýsingu AB.

„Svar AB innihélt afsökunarbeiðni og viðurkenningu á að hafa sparkað í auglýsingaskiltið og klapp á meðan hann fór af vellinum. Á margra ára ferli hefur Fannar aldrei fengið rautt spjald áður og við könnumst ekki við útgáfu Bold á því sem gekk á eftir leik. Fannar vissi ekki að hann mætti ekki fara aftur inn á völlinn eftir leik. Hann ætlaði að biðja dómarana afsökunar en mátti það ekki."

„Það er leiðinlegt að það megi ekki tala um þessa hluti á rólegu nótunum og læra. Ég sem þjálfari liðsins ber ábyrgð á þeirri hegðun sem ég sýndi eftir leik og ég læri af henni. Vonandi sýni ég betri útgáfu af sjálfum mér í framtíðinni,“ er haft eftir Fannari.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.