Fotbolti.net
14.09.26 - 07:56
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Skoraði flautusigurmark gegn Juventus sem hann „vildi ekki skora“

Vasilije Adzic skoraði sigurmark gegn félaginu sem hann er í láni frá.

Vasilije Adzic skoraði sigurmark gegn félaginu sem hann er í láni frá.

Canon

Mynd: EPA

Svartfellingurinn Vasilije Adzic skoraði sigurmark Sassuolo með síðustu spyrnu leiksins þegar liðið vann Juventus 3-2 í hádramatískum leik í ítölsu A-deildinni í kvöld.

Adzic vildi ekki fagna markinu enda var hann að skora gegn sínu félagi, hann kom til Sassuolo á láni frá Juventus í sumar.

„Þetta er rosalega skrítin tilfinning. Á þessum degi fyrir ári síðan skoraði ég mitt fyrsta mark fyrir Juventus og núna skora ég á móti félaginu mínu," segir Adzic.

Markið sem hann vitnar í fyrir ári síðan var líka sigurmark í uppbótartíma, í 3-2 sigri Juve gegn Inter í Derby d’Italia.

Adzic, sem er tvítugur miðjumaður, er kominn með þrjú mörk fyrir Sassuolo en félagið er með ákvæði um að geta keypt hann eftir tímabilið. Í ítölskum fjölmiðlum er mikið rætt og ritað um að Adzic gæti vel nýst Juventus í dag en liðið er að ganga í gegnum mikil meiðslavandræði. Hann var spurður út í þá umræðu.

„Ég get ekki svarað því, því miður," sagði Adzic broasandi. „Ég kom fyrir mánuði síðan til Sassuolo og þjálfarinn hefur lagt mikið traust á mig, sem er mikilvægt fyrir ungan leikmann. Ég vil vaxa sem leikmaður og það er mikilvægt fyrir mig að fá stöðugan leiktíma."

Sigurmarkið má sjá hér að neðan.
Ítalía: Mikil dramatík í tapi Juventus
TENGT EFNI

Ítalía: Mikil dramatík í tapi Juventus

Adzic (til hægri) í leik með Juventus.

Adzic (til hægri) í leik með Juventus.

Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter6+1016
2Lazio6+716
3Roma6+1114
4Cagliari6+313
5Milan6+612
6Juventus6+411
7Como6+311
8Napoli6+410
9Frosinone6+210
10Atalanta609
11Sassuolo608
12Torino6-27
13Lecce6-66
14Bologna6-25
15Udinese6-44
16Monza6-64
17Genoa6-64
18Parma6-64
19Fiorentina6-74
20Venezia6-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.