Fotbolti.net
13.09.26 - 18:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Carrick: Fólk á skrifstofum með alla þessa skjái

Carrick: Fólk á skrifstofum með alla þessa skjái
Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Man Utd, var mjög ósáttur eftir tap liðsins gegn Man City í dag.

Erling Haaland skoraði eina mark leiksins eftir fyrirgjöf frá Josko Gvardiol. Enzo Fernandez var nálægt því að komast í boltann áður en hann barst til Haaland.

Fernandez var rangstæður og Carrick telur að hann hafi haft áhrif og hefði átt að vera dæmdur rangstæður.
„Ég er ringlaður. Við erum með fólk á skrifstofum með alla þessa skjái fyrir þessa ákvörðun. Það er meira áhyggjuefni að þetta þetta sé túlkunin á fótbolta núna. Ef þetta er túlkunin á því að skipta sér ekki af leiknum núna, þá er það mjög mikið áhyggjuefni fyrir mig," sagði Carrick.

„Ákvörðunin mun ekki breyta tímabilinu, en hún hafði mikil áhrif á leikinn. Þessi ákvörðun var ekki okkur í hag í dag. Það er undir okkur komið að skapa og skora eftir það. Við áttum augnablik. Auðvitað er það undir okkur komið að gera það, en stórar stundir í leikjum eins og þessum hafa mikil áhrif."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.