Fotbolti.net
13.09.26 - 20:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þýskaland: Kane skoraði sitt fyrsta deildarmark

Þýskaland: Kane skoraði sitt fyrsta deildarmark
Canon

Mynd: EPA

Harry Kane skoraði sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu í sigri Bayern gegn nýliðum Elversberg í dag. Lennart Karl sá til þess að Bayern var með forystuna í hálfleik. Hann lúrði á fjærstönginni og skoraði eftir sendingu frá Ismael Saibari.

Cole Campbell var í byrjunarliði Elversberg en hann var tekinn af velli í hálfleik. Maurice Krattenmacher kom inn á fyrir hann og jafnaði metin með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn. Boltinn endaði í bláhorninu. Kane reyndist hetja Bayern þegar hann skoraði með skoti úr teignum.

Bayern er í 4. sæti með sjö stig eftir þrjár umferðir en Elversberg er í 6. sæti með sex stig. Þá vann Leipzig stórsigur á HSV. Leipzig er í 5. sæti með sex stig en HSV er á botninum án stiga.
RB Leipzig 5 - 0 Hamburger
1-0 Tidiam Gomis ('17 )
2-0 Antonio Nusa ('28 )
3-0 Willi Orban ('72 )
4-0 Christopher Nkunku ('74 )
5-0 Romulo ('77 )

Elversberg 1 - 2 Bayern
0-1 Lennart Karl ('26 )
1-1 Maurice Krattenmacher ('61 )
1-2 Harry Kane ('72 )

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Freiburg5+1013
2Dortmund5+713
3Bayern5+1211
4Leverkusen5+610
5RB Leipzig5+109
6Augsburg5+58
7Werder508
8Mainz5+37
9Elversberg507
10Köln5-27
11Stuttgart5-16
12Hamburger5-106
13Schalke 045-25
14Frankfurt5-75
15Paderborn5-44
16Union Berlin5-124
17Hoffenheim5-43
18Gladbach5-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.