Fotbolti.net
14.10.19 - 23:11
Brynjar Ingi Erluson

Myndband: Frábær stuðningur frá ensku áhorfendunum

Stuðningsmenn Englands létu vel í sér heyra

Stuðningsmenn Englands létu vel í sér heyra

Canon

Mynd: Getty Images

Stuðningsmenn enska landsliðsins komu leikmönnum sínum til varnar í 6-0 sigrinum á Búlgaríu í kvöld og sáu til þess að að þeir fengu allan þann stuðning sem þeir þurftu á að halda.
Fjölmargir leikmenn enska landsliðsins voru beittir kynþáttaníði í Búlgaríu í kvöld af búlgörsku stuðningsmönnunum. Leikurinn var stöðvaður í tvígang og þá var stuðningsmönnunum tilkynnt að þeir yrðu að hætta þessu annars yrði leikurinn flautaður af.

Ivelin Popov, fyrirliði Búlgaríu, ræddi við stuðningsmennina í hálfleik og bað þá um að hætta.

Ensku stuðningmennirnir ákváðu þá að þagga niður í þeim en er Raheem Sterling skoraði þá buðu þeir upp á skemmtilega söngva en hægt er að sjá myndband af því hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.