Kolbeinn Sigþórsson er búin að koma íslenska landsliðinu í 2-0 gegn Andorra í undankeppni Evrópumótsins í kvöld.
Kolbeinn lagði upp fyrsta markið fyrir Arnór Sigurðsson og bætti svo við öðru um miðjan síðari hálfleikinn.
Ragnar Sigurðsson átti góða sendingu á Kolbein sem fíflaði leikmenn Andorra áður en hann kom boltanum í netið.
Þetta var 26. mark Kolbeins og er hann nú búinn að jafna markamet Eiðs Smára Guðjohnsen.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Kolbeinn Sigþórsson er búinn að jafna markamet @Eidur22Official fyrir landsliðið. 26 landsliðsmörk. Ísland er komið í 2-0 á móti Andorra. #ISLAND pic.twitter.com/pAhhFlE5PG
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 14, 2019
Athugasemdir