Breskur karlmaður lést í höfuðborg Búlgaríu í dag en England er að fara að keppa gegn heimamönnum í undankeppni EM í Sofia í kvöld.
Enska knattspyrnusambandið segist ekki ætla að tjá sig um málið fyrr en málsatvik séu orðin ljós.
Enska knattspyrnusambandið segist ekki ætla að tjá sig um málið fyrr en málsatvik séu orðin ljós.
Maðurinn sem lést var 32 ára.
Það sem vitað er að lögreglan í Búlgaríu fékk tilkynningu um mann í slæmu ástandi og var hann fluttur á sjúkrahús.
Hann byrjaði að hegða sér á árásargjarnan hátt og stóð í hótunum. Þega það átti að flytja hann á lögreglustöðina lést hann.
Lögreglan rannsakar nú hvort að einstaklingurinn hafi verið undir áhrifum fíkniefna en það hefur ekki fengist staðfest.
Athugasemdir