Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. október 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Inter að eltast við framherja Genk
Paul Onuachu
Paul Onuachu
Mynd: EPA
Ítalska félagið Inter hefur mikinn áhuga á því að fá nígeríska framherjann Paul Onuachu frá belgíska félaginu Genk. Þetta kemur fram í ítölsku miðlunum í dag.

Onuachu er 27 ára gamall og kom til Genk frá danska félaginu Midtjylland árið 2019.

Hann er kominn með 11 mörk í 14 leikjum á þessari leiktíð og hafa mörg félög í stærstu fimm deildunum í Evrópu verið að fylgjast grannt með honum.

Hæðin á Onuachu heillar félögin en hann er 201 sentimetri á hæð.

Alexis Sanchez er líklega á förum frá Inter í janúar og þá opnast pláss fyrir annan framherja.

Genk vill fá 25 milljónir evra fyrir Onuachu en Atlético Madríd og Arsenal eru einnig í baráttunni um hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner