Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. október 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild kvenna í dag - Íslendingaslagur í Þýskalandi
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og stöllur í Bayern mæta Häcken
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og stöllur í Bayern mæta Häcken
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Meistaradeild kvenna heldur áfram í kvöld með fjórum leikjum í C- og D-riðli. Þrír Íslendingar verða í eldlínunni.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir verða með Bayern München sem mætir sænska úrvalsdeildarliðinu Häcken, en Diljá Ýr Zomers er á mála hjá liðinu.

Lyon spilar þá við Benfica í sama riðli. Í C-riðli spilar HB Koge við Evrópumeistara Barcelona á meðan Arsenal mætir Hoffenheim.

Leikir dagsins:

C-riðill:
16:45 Koge - Barcelona
19:00 Arsenal - Hoffenheim

D-riðill:
16:45 Bayern - Häcken
19:00 Lyon - SL Benfica
Athugasemdir
banner
banner