Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 14. október 2021 21:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sterling vill spila meira - Draumur að spila utan Englands
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling leikmaður Manchester City hefur sagt frá því að hann vilji spila utan Englands.

Hann hefur ekki spilað eins mikið og hann hefði viljað undanfarið hjá félaginu en hann skoraði 30 mörk í 51 leik tímabilið 2019-20. Honum tókst hinsvegar aðeins að skora 14 mörk á síðustu leiktíð, þá hefur hann aðeins byrjað í tveimur leikjum á þessari leiktíð.

Hann tjáði sig um drauma sína á viðburði á vegum Financial Times.

„Ef tækifæri gefst að fara eitthvað annað til að fá meiri spiltíma myndi ég vera opinn fyrir því. Fótboltinn er mér allt, ég hef sett mér há markmið og drauma frá unga aldri að spila erlendis."

Sterling gekk til liðs við Man City frá Liverpool árið 2015.
Athugasemdir
banner
banner
banner