Fotbolti.net
14.10.26 - 15:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Martínez líklega refsað fyrir viðtalið

Lisandro Martinez.

Lisandro Martinez.

Canon

Mynd: EPA

Lisandro Martínez gæti fengið refsingu eftir að hafa gagnrýnt stjórnendur Manchester United harkalega í gærkvöldi. Argentínumaðurinn gagnrýndi meðal annars Jason Wilcox, yfirmann fótboltamála hjá félaginu.
Klefinn hjá Man Utd deilir skoðun Martínez
TENGT EFNI

Klefinn hjá Man Utd deilir skoðun Martínez

Martínez sagðist hafa búist við meiri fjárfestingu við leikmannahópinn og að hann hefði vænst meira af Wilcox. Samkvæmt The Athletic gæti gagnrýnin haft afleiðingar fyrir miðvörðinn.

Ólíklegt er talið að Martínez verði í byrjunarliði United gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Þá telja heimildarmenn The Athletic nánast öruggt að hann verði sektaður vegna ummæla sinna.

Óvissa ríkir jafnframt um framtíð Martínez hjá félaginu. Samningur hans rennur út næsta sumar, en United hefur möguleika á að framlengja hann um eitt ár. The Athletic telur ólíklegt að leikmaðurinn vilji nýta sér þann möguleika en Sky Sports greinir einnig frá því að miklar efasemdir séu nú um framtíð hans á Old Trafford.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.