Fotbolti.net
14.10.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mourinho nýtti tækifærið til að skjóta á Barcelona

Jose Mourinho.

Jose Mourinho.

Canon

Mynd: EPA

José Mourinho hefur á ný beint spjótum sínum að Barcelona vegna Negreira-málsins svokallaða. Portúgalinn líkti málinu við Calciopoli-hneykslið á Ítalíu árið 2006 og gagnrýndi hvernig yfirvöld í spænskum fótbolta hafa tekið á ásökununum.
Real Madrid afhenti ný gögn í Negreira rannsókninni
TENGT EFNI

Real Madrid afhenti ný gögn í Negreira rannsókninni

Mourinho lét ummælin falla í viðtali við Amazon Prime fyrir Meistaradeildarleik á Ólympíuleikvanginum í Róm í kvöld. Hann hrósaði ítölskum yfirvöldum fyrir viðbrögðin við Calciopoli-málinu, sem hafði mikil áhrif á ítalskan fótbolta.

„Ég ætla aðeins að segja eitt. Til hamingju, Ítalía. Veistu af hverju? Vegna þess að þetta er eina landið þar sem Calciopoli var í raun Calciopoli. Eina landið. Allir vita hvað gerðist á Spáni, en samt er ekki hægt að anda léttar. Enn sem komið er hefur ekkert gerst, ekkert gerst,“ sagði Mourinho.

Negreira-málið snýst um meintar greiðslur Barcelona til fyrirtækis í eigu José María Enríquez Negreira, fyrrverandi varaforseta tækninefndar spænskra dómara. Hann gegndi því embætti frá 2001 til 2018. Barcelona hefur ávallt neitað sök.

„Ef ekkert gerist gæti þetta orðið stærsta spillingarmál tengt dómurum í sögu fótbolta. Það er ekkert meira um það að segja,“ sagði Mourinho.

Calciopoli-skandallinn braust út á Ítalíu árið 2006 þegar upp komst um samskipti forráðamanna fótboltafélaga og dómarayfirvalda, þar sem reynt var að hafa áhrif á dómaraval í leikjum. Juventus var svipt tveimur ítölskum meistaratitlum og dæmt niður í B-deild út af málinu, en AC Milan, Fiorentina, Lazio og Reggina fengu einnig refsingar. Málið hafði mikil áhrif á ítalskan fótbolta og er enn eitt þekktasta hneykslismál í sögu íþróttarinnar.
Mourinho nýtti tækifærið til að skjóta á Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.