14.10.26 - 13:21
Elvar Geir Magnússon
Evrópukeppni unglingaliða: Bjarki með tvennu - Þór spilar í Vilnius í dag

Bjarki Hrafn Garðarsson.

Mynd: Borussia Dortmund

Bjarki Hrafn Garðarsson.

Mynd: Borussia Dortmund
Unglingalandsliðsmaðurinn Bjarki Hrafn Garðarsson hefur verið iðinn við kolann fyrir U19 lið Borussia Dortmund og hann skoraði tvö mörk fyrir þýska liðið í 5-0 sigri gegn Bodö/Glimt í Evrópukeppni unglingaliða í dag.
Bjarki lék fyrstu 66 mínútur leiksins en þetta var annar leikur Dortmund í deildarkeppninni, liðið tapaði fyrsta leiknum.
Dortmund fékk hinn sextán ára gamla Bjarka, sem er stór og stæðilegur sóknarmaður, frá Stjörnunni í sumar

Í útsláttarkeppninni mætast Zalgiris og Þór Akureyri klukkan 16 en leikurinn fer fram í Vilnius í Litáen. Zalgiris er með 4-3 forystu í einvíginu eftir sigur á Akureyri.
Fylgst verður með leiknum í úrslitaþjónustu hér á Fótbolta.net.
Sigurvegarinn úr einvígi Þórs og Zalgiris mætir St. Patrick's Athletic frá Írlandi í næstu umferð, 28. október og 4. nóvember, og það lið sem hefur betur þar leikur væntanlega við enska félagið Chelsea í umferðinni þar á eftir.

Þór varð Íslandsmeistari í 2. flokki á síðasta tímabili og Zalgiris vann deildina í Litáen.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik