14.10.26 - 11:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stjarnan kaupir Rúnar - „Auðvitað er sárt að missa hann"

Rúnar Páll átti tvö góð ár í Gróttu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Þór Axelsson, hér til hægri, er yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu.

Mynd: Grótta

Grótta kom á óvart í Lengjudeildinni í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll er farinn í Stjörnuna á ný.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Rúnar Páll átti tvö góð ár í Gróttu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vorum mjög meðvituð um að það er mikil saga þarna," segir Arnar Þór Axelsson, yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu, í samtali við Fótbolta.net um tíðindi gærkvöldsins. Rúnar Páll Sigmundsson var þá ráðinn þjálfari Stjörnunnar á ný en hann hefur stýrt Gróttu síðustu tvær leiktíðir.
Rúnar Páll er gríðarlega hátt skrifaður hjá félaginu en hann gerði Stjörnuna að Íslandsmeistara 2014 og bikarmeistara 2018.

TENGT EFNI
Rúnar Páll tekur við Stjörnunni (Staðfest)
Síðustu tvö tímabil hefur Rúnar Páll stýrt Gróttu með góðum árangri. „Við vorum meðvituð um að Stjarnan gæti beðið um að fá að ræða við hann. Ég segi ekki að þetta hafi komið á óvart, en við erum nýbúnir að skrifa undir samning við Rúnar og vildum halda honum," segir Arnar.
Einhverjar slúðursögur hafa verið um að Rúnar sé að fara frítt yfir í Stjörnuna, en svo er ekki.
„Félögin komust að samkomulagi, Stjarnan kaupir Rúnar. Hann fer ekki frítt."
Samstarf sem virkaði frábærlega
Rúnar kom til Gróttu fyrir sumarið 2025 þegar liðið hafði fallið í 2. deild. Hann kom liðinu upp í fyrstu tilraun og svo kom Grótta skemmtilega á óvart í Lengjudeildinni í sumar.
„Þetta var samstarf sem virkaði frábærlega," segir Arnar. „Rúnar er mjög stórt nafn þegar hann kemur til Gróttu sem var í 2. deild. Þetta var metnaðarfull ráðning hjá félaginu og Rúnar fer niður í 2. deild til að rífa félagið upp. Það heldur betur tekst hjá honum. Allir innan félagsins voru ótrúlega ánægðir með hann."
„Þetta er eins og með leikmennina okkar í Gróttu; þegar fólk tekur skref upp á við þá stöndum við ekki í vegi fyrir því ef sanngjarnt samkomulag næst. Við verðum að sýna því skilning að Rúnar er gríðarlegur Stjörnumaður og það er mikil saga þarna. Auðvitað er sárt að missa hann og hann skrifaði nýverið undir þriggja ára samning, sem þýðir að hann var í framtíðarplönum félagsins. Við erum samt glöð fyrir hans hönd, alveg klárlega, og óskum honum alls hins besta."
„Þetta er mjög skýrt dæmi um það hversu hratt umhverfið getur breyst. Það var ekki planið að fara í þjálfaraleit á þessu undirbúningstímabili. Algjörlega ekki," segir Arnar, en er einhver vinna farin í gang?
„Við vildum klára okkar mál við Stjörnuna fyrst. Liðið er í góðum höndum þegar það byrjar að æfa aftur hjá Paul Westren sem er aðstoðarþjálfari. Við ætlum að gefa okkur góðan tíma. Það er í raun engin þannig vinna byrjuð. Auðvitað fer hausinn alltaf af stað, en það er engin markviss vinna hafin."