Fotbolti.net
14.11.14 - 21:40
Brynjar Ingi Erluson

Alexander Magnússon í Keflavík (Staðfest)

Alexander Magnússon í Keflavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík í Pepsi-deild karla hefur fengið til liðs við sig Alexander Magnússon frá Grindavík en Víkurfréttir greina frá þessu.
Alexander, sem er 25 ára gamall, hefur leikið með Grindvíkingum undanfarin ár eða frá árinu 2010.

Hann hefur lítið spilað síðustu tvö sumur vegna meiðsla í hné en hann er þó að jafna sig af þeim og er til í slaginn á ný en hann tekur slaginn með Keflvíkingum.

,,„Ég tel mig vera tilbúinn og Keflavík er tilbúið að hjálpa mér til þess að jafna mig almennilega,“ sagði Alexander við Víkurfréttir.

Guðjón Árni Antoníusson og Hólmar Örn Rúnarsson gengu báðir til liðs við Keflavík á dögunum en ljóst er að Keflvíkingar ætla sér stóra hluti næsta sumar.

Heimild: Víkurfréttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.