Fotbolti.net
14.11.14 - 15:57
Alexander Freyr Tamimi

Glódís Perla til Eskilstuna (Staðfest)

Glódís er á förum til Svíþjóðar.

Glódís er á förum til Svíþjóðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Glódís Perla Viggósdóttir skrifaði í dag undir samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Eskilstuna, en þetta kom fram í tilkynningu frá Stjörnunni.

Glódís hefur leikið í hjarta varnarinnar hjá Stjörnunni undanfarin þrjú tímabil og vann hún Íslandsmeistaratitilinn tvisvar og bikarmeistaratitilinn tvisvar.

Þá er Glódís einnig orðin fastamaður í A-landsliðinu, og fór hún meðal annars á EM 2013 í Svíþjóð þar sem Ísland fór upp úr riðlinum.
,,Einar Páll Tamimi, formaður meistaraflokksráðs kvenna í Stjörnunni segist óska Glódísi Perlu velfarnaðar á nýjum vettvangi og færir henni bestu þakkir fyrir framlag hennar til félagsins síðustu árin," segir í tilkynningu Stjörnunnar.



,,Glódís Perla vill á þessum tímamótum þakka Stjörnunni frábæran tíma hjá félaginu sem hafi veitt henni afbragðs umgjörð til vaxtar og þroska sem knattspyrnukonu. Hún óskar liðinu áframhaldandi góðs gengis á komandi árum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.