Fotbolti.net
14.11.14 - 12:03
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Mazzarri rekinn frá Inter (Staðfest) - Mancini tekur við

Roberto Mancini tekur við Inter á ný.

Roberto Mancini tekur við Inter á ný.

Canon

Mynd: Getty Images

Walter Mazzarri hefur verið rekinn sem þjálfari Inter og Roberto Mancini mun taka við starfinu samkvæmt fréttum í dag.
Ítalskir fjölmiðlar segja að Erick Thohir hafi tekið þessa ákvörðun seint í gærkvöldi og hlutirnir hafa verið fljótir að gerast.

Mancini var þjálfari Inter í fjögur ár á sínum tíma, 2004-2008, þar sem hann vann ítalska meistaratitilinn í þrígang og bikarmeistaratitilinn tvívegis.

Hann skrifar undir tveggja og hálfs árs samning á morgun og stýrir sínum fyrsta leik gegn AC Milan þann 23. nóvember.

Inter er í níunda sæti ítölsku deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.