Fotbolti.net
14.11.14 - 13:15
Elvar Geir Magnússon

Orri Hjaltalín spilandi aðstoðarþjálfari Magna (Staðfest)

Orri Hjaltalín spilandi aðstoðarþjálfari Magna (Staðfest)
Canon

Mynd: Magni

Orri Freyr Hjaltalín er búinn að hafa félagaskipti úr Þór yfir í Magna á Grenivík og verður spilandi aðstoðarþjálfari liðsins næsta sumar.
Magni leikur í 3. deildinni og hafnaði þar í sjöunda sæti á liðnu sumri.

Orri er 34 ára og hefur leikið með Þór og Grindavík í efstu deild. Í sumar lék hann í vörn Þórsara sem féllu úr Pepsi-deildinni.

Á myndinni eru Orri til vinstri og Guðmundur Þór Sæmundsson stjórnarmaður Magna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.